Jæja þá er sumarpróf í stærðfræði á morgun, vonandi mæti ég á réttum tíma í þetta skiptið.
Eins og margir tóku kannski eftir þá var menningarnótt um helgina og maður lét sig auðvitað ekki vanta þar. Ég var feginn að veðrið var fínt eftir allt saman, en það var búið að spá einvherri súld og álíka skemmtilegheitum fyrr í vikunni þannig að ég get ekki kvartað yfir sól og blíðu.
Dagskráin var þétt að vanda, en ég fór nú aðallega á tónleikana sem voru í boði. Við Haukur og Kiddi fórum og sáum Guitar Islancio, Tepoka og gerðum heiðarlega tilraun til að sjá Mezzoforte... held að maður hafi bara verið heppinn að sleppa úr því lifandi.
Svo urðum við vitni af einhverjum mormónum sem voru með "söngatriði" fyrir utan Deli, en þar var sungið um dýrð drottins og hvaðeina, og verið að reyna að sannfæra okkur að spámaðurinn "John" eða eitthvað hafi verið uppí í Ameríku 600 f.kr. Það vantaði eitthvað uppá hjá þeim til að maður gæti tekið þá trúarlega. Þeir dreifðu miðum á flestalla.... slepptu mér reyndar, ég er líklega alltof mikill heiðingi, ætli þeir hafi ekki fundið heiðingjalyktina og haldið sig fjarri.
Við fórum svo inn á Súfistann þar sem við hittum fyrir fyrrverandi kórstjórann okkar sem bauð okkur uppá kaffi og muffins... kærkomin hressing fyrir kvöldið.
Eftir flugeldasýninguna var haldið í Hafnarfjörðinn í partý og svo aftur niðrí bæ um 3 leitið... æi svo var þetta bara djamm fram á morgun og þynnka daginn eftir same old same old... nenni ekki að skrifa meira...
Ég gerðist svo duglegur og fór í tónlistar-innkaupaleiðangur, og keypti mér nokkrar skífur. Listinn hljóðar svona:
Kid A,
The Bends,
The Eraser ( takið þið eftir einhverju munstri hérna? :P) ,
Asylum Years með Tom Waits, Safndisk með
Bob Marley og svo
Black Holes & Revelations með Muse.
Nýji Muse diskurinn er búinn að óma í græjunum svolítið undanfarið, og verð ég að segja að þarna er mjög góð plata á ferð. Þeir eru aðeins búnir að breyta um stíl frá síðustu plötu og er þessi diskur aðeins rafrænni ef eitthvað er, maður tekur jafnvel eftir áhrifum frá Depeche Mode.
... jæja aftur að læra...